15. desember 2005 05:14 (5 lesendur hafa sagt álit sitt.) | ||||||||||||||||||||||
Ferðast með bróður | ||||||||||||||||||||||
Halldór kominn | ||||||||||||||||||||||
Halldór bróðir mætti eldsnemma morgunin eftir að ég kom úr köfunarferðinni (8. des). Flugvélin lenti um kl 8 og Halldór var mættur að vekja okkur Jes um korter í 9 - fljólegt að fara í gegnum Phuket flugvöll. Við fengum okkur svo morgunmat og sendum Jes aftur inn í rúm að sofa, enda hafði hann nánast nýlokið við að lesa Harry Potter bók og var bara búinn að sofa í 3 tíma.
Á meðan Jes safnaði kröftum fyrir daginn tókum við bræður göngutúr um ströndina og skelltum okkur svo í nudd. Ákváðum strax eftir nuddið að þetta myndum við gera á hverjum morgni það sem eftir væri af ferðinni: Borða morgunmat hjá vinukonu okkar Já og fara í tælenskt nudd á eftir.
| ||||||||||||||||||||||
Seinna um daginn skelltum við, tríóð, okkur til Patong Beach. Patong er þekktasta og sennilega (ótrúlegt en satt) jafnframt sú vinsælasta. Við ráfuðum um götur Patong í soldinn tíma. Götulífið einkenndist af sölutjöldum/skúrum sem seldu eftirlíkingar af merkjavöru (Diesel vinsælast þar), mönnum sem að hrópuðu einhverju að manni til að reyna að fá mann til að kaupa þetta skran og svo Túk Túk leigubílum með álíka ágengum og háværum bílstjórum. Það var því mikill léttir að komast inn í verslunarmiðstöð þar sem maður loksins gat heyrt í sjálfum sér hugsa. Svolítið skrítið að það sé virkilega betra að vera inni í lítilli Kringlu heldur en úti á götu, venjulega finnst mér ekkert jafn hræðilegt og að vera of lengi inni í verslunarmiðstöðvum. Dagurinn eftir var tekinn rólega á ströndinni (Nai Yang). Allt annað líf að vera þar heldur en í Patong! Við afrekuðum þó eitt þennan dag og það var að plana næstu daga af ferðinni. Það var líkil "ferðaskrifstofa" í tjaldi á ströndinni sem hjálpaði okkur. Bókaði okkur í siglingu um Phang Nga þjóðgarðinn, leigubíl til Phuket Town, bát þaðan til Phi Phi eyja, hótel á Phi Phi Don og opinn miða með bátnum frá Phi Phi til Krabi, þaðan sem við fljúgum til Singapore þann 21. des.
Okkur "sveitamönnunum" af Nai Yang Beach (þar sem við vorum nánst einu kúnnarnir) var hálf brugðið að vera allt í einu innan um allt þetta fólk á bátnum á leiðinni til Phi Phi. Þetta vandist þó fljótt og var ágætis aðlögun fyrir Phi Phi sem er sennilega svona mitt á milli Patong og Nai Yang Beach.
Fljótlega eftir að við komum til Phi Phi hitti ég Rasmus, sem var þar á ferðaleagi með kærustu sinni, Karen. Við Rasmus höfðum mælt okkur mót fyrir utan eitt af divecenterunum. Við fórum saman í þrjár kafanir í kringum Koh Bon og í Maya Bay (þar sem ströndin í The Beach er). Við vorum svo ljónheppnir að lítið var að gera þennan dag hjá divecenterinu og vorum við því bara þrír á bátnum, ég, Rasmus og divemasterinn. Það er lúksus sem maður fær ekki oft, að hafa sinn eigin bát.
Rasmus og Karen héldu síðan áfram för sinni daginn eftir. Þann sama dag byrjaði Halldór svo á Open Water kúrsinum (kafararéttindi). Ég tók deginum rólega og las við sundlaugina á hótelinu. Næstu tvo daga var Halldór á Open Water kúrsinum. Ég fór með í allar kafanirnar og voru bestur kafanirnar í gær þar sem við sáum skjaldböku og Leopard shark. Í dag er hinsvegar mígandi rigning og var hætt við köfun dagsins vegna þess. Ferðinni var hetið til Hin Daeng (rauði klettur), þar sem á að vera algent að sjá Manta rays (einhverskonar risaskötur). Við frestuðum þessari ferð til morguns og vonum að veðrið verði betra þá. Dagurinn í dag verður notaður í inniveru s.s. blogg og bókalestur. | ||||||||||||||||||||||
Einar | ||||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||||
Tenglar
Singapore:
National University of Singapore
Visit Singapore
Jes (dk)
Marie (dk)
Fólkið heima ...og heiman:
Axel
Árni
Erling
Guðrún Björk
Heiða
Katy
Kristín Halla
Líney
Óli
Thelma
Þóra Sif
Eldra
Ferðast með bróðurKöfunarferð til Similan eyjaPhuket, Thai Boxing og James BondÖnnin búin - kominn í frí!Súkkulaði og prófalesturStúdentagleðskapur að Skandínavískum hættiMiðannarpróf og kóreyskur maturErling í heimsóknMid-term break!SkitakuldiKöfunarferð á Pulau AurÁ kafiWomad Singapore 2005Rauðir þríhyrningarEnginn fredagsøl?!?!?Happy Birthday SingaporeFyrsti skóladagurinn og Shopping tripÍ kynningarferð með JamesSentosa IslandOrientation dayFerðin út
Yfirlit
Yfirlit

Ný comment
K2IbMV <a href="http://balgrrpfokbm.com/">balgrrpfokbm</a>, [url=http://oahkcxbmnska.com/]oahkcxbmnska[/url], [link=http://ciztewkserqn.com/]ciztewkserqn[/link], http://ywrrrixcgafd.com/
9. september 2010 - name
Hard fraud occurs when someone deliberately plans or invents a loss, such as a collision, auto theft, or fire that is covered by their insurance,
9. september 2010 - name
In the U.S. and Canada, dental insurance is often part of an employer's benefits package, along with health insurance.,