Kleinan.is - SingaporeBlog
Ferðast með bróður
          <description>Halldór bróðir mætti eldsnemma morgunin eftir að ég kom úr köfunarferðinni (8. des). Flugvélin lenti um kl 8 og Halldór var mættur að vekja okkur Jes um korter í 9 - fljólegt að fara í gegnum Phuket flugvöll. Við fengum okkur svo morgunmat og sendum Jes aftur inn í rúm að sofa, enda hafði hann nánast nýlokið við að lesa Harry Potter bók og var bara búinn að sofa í 3 tíma.
Á meðan Jes safnaði kröftum fyrir daginn tókum við bræður göngutúr um ströndina og skelltum okkur svo í nudd. Ákváðum strax eftir nuddið að þetta myndum við gera á hverjum morgni það sem eftir væri af ferðinni: Borða morgunmat hjá vinukonu okkar Já og fara í tælenskt nudd á eftir.
Köfunarferð til Similan eyja
          <description>Eftir þriggja daga túr um Similan eyjar við vesturströnd Tælands er ég orðinn vel kafaður í bili. Ég kom "heim" á Nai Yang Beach að kvöldi til þann 7. des. Báturinn fór frá bæ ofan við Phuket, sem heitir Khao Lak. Khao Lak virtist vera mjög lítill bær, bara ein gata sem jafnframt var þjóðvegur. Held að það finnst varla svona bæjir á Íslandi. Við þessa götu voru til skiptis köfunarsjoppur, klæðskerar og matsölustaðir - greinilegt að túrismi er aðal tekjulind bæjarins. </description>
Phuket, Thai Boxing og James Bond
          <description> Tha erum vid ferdafelagarnir komin til Phuket. Jes var buinn ad boka hotel a Nai Yang Beach sem er frekar roleg strond med ekki alltof mikid af turistum. Turistarnir eru tho heldur i eldri kantinum og er thad sennilega onnur astaedan fyrir thvi ad vid 3 vekjum frekar mikla athygli her a strondinni. Hin astaedan er sennilega su ad vid erum nokkud blandadur hopur (ef 3 kallast hopur). Hopurinn samanstendur af einum Dana, Jes sem er aettleiddur fra Koreu en flestir halda ad hann se fra Japan, Georgi, stelpa fra Singapore sem aefir Taekwando med Jes, og mer islendingnum sem lit ekki beint ut fyrir ad vera asiskur. </description>
Önnin búin - kominn í frí!
          <description>Loksins, loksins, loksins er skólinn búinn! Síðasta prófið var á mánudaginn og síðan hafa dagarnir liðið hratt, án þess að maður sé búinn að gera nokkurn skapaðan hlut.
Ég er þó aðeins búinn að leggja stund á þjóðaríþrótta Singapúra síðustu daga, sem er “shopping”. Ég vil eiginlega meina að það sé það eina sem maður getur gert í Singapore ...svona næstum.
Súkkulaði og prófalestur
          <description>Enn og aftur hef ég tekið mér langt hlé frá blogginu. Vægast sagt ekki til fyrirmyndar. 
Ástæðan er þó sú að það hefur allt gengið sinn vanagang hérna í Singapore. Það eru allir hérna, ég þar með talinn, búnir að vera frekar uppteknir í skólanum. Lokaspretturinn fyrir próf. </description>
Stúdentagleðskapur að Skandínavískum hætti
          <description>Síðustu helgar hefur verið óvenjulega mikið um gleðskap hjá okkur skiptineunum. “Við Danirnir” héldum party að dönskum hætti inni á herberginu hans Frej um daginn. Herbergin hérna á PGP eru mjög lítil, u.þ.b. 9 fm, og var því vel heitt þarna inni. Eftir því sem leið á gleðskapinn fórum við að hafa aðeins hærra, syngja með og allt sem tilheyrir góðum gleðskap. Þó allt inni í herbergi svo við myndum nú ekki trufla nágrannana. 
Miðannarpróf og kóreyskur matur
          <description>Eftir að Erling var farinn heim tók alvaran við hjá mér. Miðannarprófin. Ég þufti þó einungis að fara í tvö slík próf, í Networking og AI (gervigreind). Það er skemmst frá því að segja að prófin voru talsvert erfiðari en ég á að venjast bæði frá Íslandi og Danmörku og var ég því ekki alveg nógu vel undirbúinn. Á hverju átti maður svosem von þegar krakkarnir hérna nota hverja lausa stund til að lesa glósur og læra -hvar sem þau eru! Ef fólk er ekki að stúdera í stræto eða lestinni, þá leggur það sig til að geta strúderað meira þegar það kemur heim!
Erling í heimsókn
          <description>Það verður að viðurkennast að ég er búinn að vera frekar latur að skrifa “dagbókina” mína hérna á vefnum undanfarið. Það er þó ekki vegna þess að það hafi ekkert verið að gerast hjá mér, síður en svo. Ég hef því ákveðið að svindla aðeins og skrifa þetta í nokkrum skömmtum með dagsetningum aftur í tímann. Þá lítur þetta betur út seinna ;-)
Skömmu eftir að ég kom heim úr haustfríinu kom Erling í heimsókn. Erling var á ráðstefnu í Sydney og kom við í Singapore í nokkra dag svona á heimleiðinni. Ég bókaði hótelherbergi fyrir okkur félaga út í Little India og hitti Erling þar eftir að að lenti seint á laugardagskvöldi. Ég hafði verið í fyrirparty-i með dönunum fyrir Octoberfest-ið hér í skólanum. Erling var að sjálfsögðu dreginn beint í party og þegar við mættum voru danirnir úr fyrirparty-inu jafnvel orðinn enn hressari en þeir voru þegar ég hafðii yfirgefið þá. </description>
Mid-term break!
          <description>Þá er miðannarfríið hérna í NUS búið (reyndar fyrir nokkrum dögum, því að ég var svo lengi að koma mér í gang með að blogga). Fríið stóð yfir frá 16. okt til 22. okt. 22. okt var fimmtudagur, alveg undarlegt að geta ekki bara gefið frí á föstudeginum líka!
Ég ætla að halda áfram þar sem frá var horfið í síðasta blogg pósti frá Perhentian. 
Skitakuldi
          <description>...Nei ekki her a Perhentian island heldur i lestinni a leidinni hingad. Vid (danirnir) logdum af stad fra Singapore um 9 leitid a fostudag. Ferdinni var heitid med lest a fyrrnefnda eyju i austur Malasiu. Lestarstjorinn misskildi adeins farminn i fyrsta vagni, thar sem vid vorum. Hann hellt greinilega ad vid vaerum kaelivara!</description>